Fimm ára stúlka með bréf til Dags: „Ég ætla að biðja þig um að hætta þessu bulli“

Fimm ára stúlka, Saga Sólrún, hefur sent borgarstjóra opið bréf þar sem hún biðlar til hans að bjarga bókabílnum. Fréttablaðið greinir frá þessu.

Greint var frá því í vikunni að Borgarbókasafnið leggi til að starfsemi bókabílsins verði lögð niður í drögum að nýrri fjárhagsáætlun.

„Kæri Borgarstjóri. Ég heiti Saga Sólrún og ég ætla að biðja þig um að hætta þessu bulli!! Bókabíllinn má ekki hætta!“ skrifar Saga Sólrún í bréfinu, en móðir hennar, Aðalbjörg Árnadóttir, birtir bréfið á Facebook-síðu sinni.

„Viltu laga þetta plís borgarstjóri. Ég elska bókabílinn svo mikið. Bestu kveðjur, hættu þessu bulli, litli sæti borgarstjóri, takk fyrir.“