Síðasta sólarhringinn létust 708 í Bretlandi. Í þeim hópi var drengur, aðeins fimm ára gamall. Ekki hafa fleiri látist á einum sólarhring á Bretlandseyjum.
Um 42 þúsund hafa smitast í Bretlandi og eru tæplega 4.500 látnir. 637 þeirra sem létust voru búsettir í Bretlandseyjum og voru þeir á aldrinum 5 ára og upp í 104 ára. Fjörutíu þeirra sem létust voru ekki með undirliggjandi sjúkdóma. Þá létust sjö heilbrigðisstarfsmenn.
Áður hefur verið greint frá að 13 ára drengur frá London hefði látist úr COVID-19. Hann var ekki með neina undirliggjandi sjúkdóma.