Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður, minntist Filippusar heitins í langri færslu á Facebook-síðu sinni í dag. Filippus prins lést í morgun 99 ára að aldri í Windsor kastala en Gunnar segir prinsinn aldrei hafa verið vinsælan.
„Filippus karlinn var ekki allra. Líklega hefur enginn nafntogaður maður komið jafn oft til Íslands án þess að vera kallaður Íslandsvinur af nokkrum manni,“ segir Gunnar. Filippus virðist þó hafa borið nokkurn hlýhug til Íslands og þá sérstaklega matarins sem honum var boðið upp á hér á landi.
Pönnukökur vinsælar í kastalanum
„Fyrir einhverju las ég viðtal við kokk í Balmoral kastala sem sagði að eftir eina veiðiferðina til Íslands hefði Filippus komið til sín og rétt sér uppskrift sem hann hafði hripað niður á minnisblað,“ útskýrir Gunnar. „Þetta var uppskrift að íslenskum pönnukökum, sem eftir þetta var oft og reglulega boðið upp á í kastalanum.“
Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir, mannréttindalögmaður, staðfestir sögu Gunnars í athugasemdum og benti á að faðir hennar, Þorgeir Þorsteinsson, hafi komið Filippusi upp á lagið með pönnsurnar. „Sem sýslumaður á Keflavíkurflugvelli tók hann iðulega á móti Filippusi, oft þegar hann millilenti hér og bauð honum upp á upprúllaðar pönnukökur með sykri, sem var það besta sem pabbi vissi,“ skrifar Herdís.
Það hafi sitt að segja að mati Gunnars að Íslendingar hafi ekki endurnefnt pönnukökur í höfuðið á drottningarmanninum. „En það var eitthvað við Filuppus karlinn sem fékk fáa til að tengja við hann. Ég held að ástæðan sé að hann var eiginmaður valdakonu.“ Slíkir menn njóti engrar virðingar.
Læra góða hluti af vondu fólki
Sjálfur kveðst Gunnar ekki tengja á neinn hátt við Filippus. „Ég hef aldrei sent honum góða hugsun, en ég held hann sé engu verri en hitt fólkið í höllinni,“ bendir blaðamaðurinn á.
„En það má læra góða hluti af vondu fólki,“ bætir Gunnar við. Ekki einungis að íslenskar pönnukökur séu herramanns matur heldur einnig góða matarsiði á borð við að gæta hófsemi milli máltíða.
Upp til hópa kjánar
„Afrek bresku konungsfjölskyldunnar er að þróa lífsstíl sem tryggir góða líkamlega heilsu og langlífi með hófsemi í mat og drykk og líkamsrækt sem miðast við hreyfingu innan svitamarka; að hreyfa sig mikið en svitna aldrei.“ Það sé lærdómur fjölskyldu sem hafi lifað við allsnægtir í margar aldir.
„En ættinni hefur ekki gengið eins vel að þróa lífsstíl sem styrkir hug, visku og andlegan þrótt. Því miður eru þetta upp til hópa kjánar í velviðhöldnum hylkjum.“