Filippus gerði stólpa­grín að smæð Ís­lands

Hannes Hólm­steinn Gissurar­son rifjar upp tíðar heim­sóknir Filippusar, her­togans af Edin­borg, til Ís­lands í grein sem hann birtir í dag á vefnum The Con­servati­ve.

Þar rifjar Hannes upp að það hafi verið lang­afi Filippusar, Kristján níundi, konungur af Dan­mörku sem hafi veitt landinu sínu fyrstu stjórnar­skrá árið 1874. Hannes minnist á það að Filippus hafi fyrst heim­sótt landið níu­tíu árum síðar, árið 1964.

Þá hafði Filippus þekkst boð for­seta Ís­lands Ás­geirs Ás­geirs­sonar um heim­sókn og stundað sína upp­á­hald­s­iðju hér­lendis; lax­veiði og fugla­skoðun. Þá hafi Filippus á­varpað mann­fjölda á svölum Al­þingis­hússins á ís­lensku sem hafi fallið vel í kramið hjá við­stöddum.

Hannes rifjar upp að þetta hafi verið fyrsta en alls ekki í síðasta skiptið sem prinsinn hafi sótt landið heim. Hann og Elísa­bet hafi meðal annars fengið að bera hand­ritin augum í opin­berri heim­sókn hér á landi 1990 og þótt mikið til koma.

Þó hafi Filippus fundist gaman að gera gys að smæð ís­lensku þjóðinnar, líkt og hann var þekktur fyrir í fleiri til­vikum. Hannes rifjar upp að Filippus hafi hitt með­limi Mezzo­forte bak­sviðs eftir djass­tón­leika í Osló árið 1990.

„Ahh, þið eruð frá Ís­landi? Við vorum þar ný­lega. Að veiða, þið vitið. Frá­bært!“ sagði prinsinn við sveitina sem var stuttyrð en kurteis. Þá barði prinsinn sér á brjóst með hnefanum og sagði: „Mjög gott. Mjög HÁ­VÆRT, huh, huh, búmm, búmm.“ Prinsinn sagði að síðustu: „Svo hvar spilið þið venju­lega á Ís­landi? Hvar sem þið getið fundið tvær mann­eskjur á sama stað býst ég við.“

A few words about Prince Philip who had a connection to Iceland …

Posted by Hannes Hólmsteinn Gissurarson on Monday, 12 April 2021