Tæplega tvítugur strákur hefur kært fertugan kvenkyns deildastjóra í grunnskóla á Suðurnesjum, sem situr einnig í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar, til lögreglu fyrir kynferðislega áreitni.
Þetta kemur fram í fréttFréttablaðsins.
Pilturinn, sem kýs að koma ekki fram undir nafni, kærði málið til lögreglu í mars síðastliðnum. Lögreglan felldi málið niður þar sem ekki þóttu nægilega sterkar sannanir og var þeim boðin sáttameðferð í málinu með lögmönnum.
Maðurinn gagnrýnir bæjaryfirvöld á Suðurnesjum vegna aðkomu þeirra í málinu og spyr sig hvernig vinnsla málsins hefði verið ef um tvítuga konu og fertugan karlmann væri að ræða. Þá hafi honum verið meinað að mæta til vinnu í þrjár vikur vegna málsins þrátt fyrir að vera þolandi í málinu.
„Ég tel líklegt að málið hefði ekki verið þaggað niður líkt og í mínu máli ef kona á tvítugsaldri hefði orðið fyrir þessu áreiti,“ segir hann.
„Ég setti inn færslu á Instagram með samskiptum milli mín og meints gerenda. Við það sendu bæjaryfirvöld strax á lögmann minn að fjarlægja færsluna og hótaðu mér brottrekstri. Þetta er ekkert annað en meðvirkni í litlu bæjarfélagi og hlutunum sópað undir teppið.“
Hér má sjá brot af samskiptum konunnar til mannsins á samfélagsmiðlum.
Hefur ekki svarað fyrirspurnum
Móðir drengsins segir í samtali við Fréttablaðið son sinn hafa ákveðið að kæra málið en á fundi með bæjaryfirvöldum hafi hann verið hvattur til að fara aðrar leiðir. „Það var verið að letja mann sem er búinn að taka ákvörðun um að tilkynna málið til lögreglu,“ segir hún.
Fréttablaðið hefur ítrekað reynt að ná tali af deildarstjóranum án árangurs.