Ferdinand Jóns­son veiktist illa í London: „Ég hef aldrei orðið eins veikur“

„Tveimur vikum eftir að lætin hófust fékk ég pestina sjálfur. Ég hef aldrei orðið eins veikur,“ segir Ferdinand Jóns­son, geð­læknir í London, í pistli í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðsins.

Ferdinand hefur búið í London undan­farin 23 ár en í Lækna­blaðinu skrifar hann um CO­VID-19 far­aldurinn. „Sem aðrir hef ég sokkið inn í heim Co­vid-19. Ég hef haft miklar á­hyggjur af mínu veikasta fólki. Og óttast að það gæti komið illa út úr þessum ham­förum,“ segir Ferdinand sem ber saman við­brögð breskra yfir­valda og þeirra ís­lensku.

Hann segir að þau hafi verið ólík og segist hann hafa dáðst að ís­lenskum yfir­völdum fyrir að leyfa besta fólkinu að ráða og nefnir hann þrí­eykið Þór­ólf, Ölmu og Víði í því sam­hengi. „Bret­land er með böggum hildar. Þar flýgur hver eins og hann er fiðraður. Fólk sem metur lítt sann­leikann ræður illa við á­skorun eins og Co­vid-19,“ segir Ferdinand sem veiktist sjálfur illa af CO­VID-19.

„Og maður hugsar um dauðann, í sínum litla súr­efnis­snauða heimi, ein­semdina og það að treysta ekki. Hér hafa öldur brotnað af þunga. Læknar eru þekktir sem lé­legir sjúk­lingar. Ég hélt að ég væri skárri, vegna reynslu af lang­vinnum, al­var­legum veikindum. Svo var ekki. Ótti og af­neitun hafa verið við völd,“ segir hann og bætir við að CO­VID-19 hafi minnt á hann á hvað mikil­vægast er.

„Co­vid-19 hefur minnt mig á hvað mikil­vægast er. Ég vissi að vin­átta er fegurst á erfiðum tímum. Fegurri en allt. Þá vissu hef ég fengið stað­festa núna.“

Pistil hans má lesa í heild sinni á vef Lækna­blaðsins.