Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir eigendum ferðataska sem fundust á víðavangi í umdæmi embættisins á dögunum.
„Í þeim eru munir sem við teljum að einhver mögulega sakni. Lögregla óskar eftir því að eigandi þessara muna hafi samband við okkur. Þess verður óskað að eigandi staðfesti eignarhald,“ segir í skeyti sem lögreglan á Suðurnesjum birti á Facebook-síðu sinni.
Þessar ferðatöskur fundust á víðavangi í umdæmi embættisins nýverið. Í þeim eru munir sem við teljum að einhver mögulega...
Posted by Lögreglustjórinn á Suðurnesjum on Þriðjudagur, 19. maí 2020