Elías Bj. Gíslason settur ferðamálastjóri segir að tekjumissir ferðaþjónustu Íslands vegna verkfalla Eflingar sé kominn yfir milljarð króna.
Þetta kemur fram í viðtali við Elías í Morgunblaðinu. Fyrstu verkföll hótelstarfsmanna hófust 7. Febrúar.
„Verkfallið á höfuðborgarsvæðinu er farið að hafa áhrif á afþreyingarfyrirtæki, bæði á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landinu. Ef hópar hafa ekki komist fyrir í Reykjavík á þeim dögum sem þeir ætluðu sér að vera og þurfa síðan að fara eitthvað annað, þá hafa þeir hópar hætt við. Það hefur verið töluvert af afbókunum, sérstaklega hópaafbókunum,“ segir Elías í samtali við Morgunblaðið.
Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir stöðuna grafalvarleg og þetta getur haft afleiðingar inn í sumarið. „Ferðaþjónustan kemur inn með mestar gjaldeyristekjur í þjóðarbúið og ef þær gjaldeyristekjur minnka, þá veikir það gjaldmiðilinn sem ýtir undir frekari verðbólgu,“ segir Lilja í samtali við Morgunblaðið.