Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, segir íslenska ferðaskrifstofu hafa reynt að hafa áhrif á Facebook-skrif hennar, þar sem hún talar gjarnan um veðrið.
„Eins og sumar lesendur mínar hafa tekið eftir, þá hefi ég ekki fjallað mikið um veðrið að undanförnu. Ónefnd íslensk ferðaskrifstofa hafði samband við mig og bað mig að hætta að segja frá kuldanum á Tenerife. Þau væru að reyna að selja sólarlandaferðir til Tenerife og svo kæmi ég með mínar dómsdagsveðurspár og fólk hætti við ferðir hingað í unnvörpum og kysu frekar að fara til hinnar heitu Tromsö og geggjuðu Akureyrar.“ skrifar Anna.
Hún segist hafa samþykkt þetta með fyrirvara, en hún segist ætla að byrja að kvarta þegar næturhitinn fari niður fyrir tuttugu gráður.
„Ég samþykkti þetta með fyrirvara, enda hefur veðrið verið þolanlegt hér að undanförnu, allt uppí 32°C á daginn en niður í 22°C á nóttunni, en ég mun byrja að kvarta um leið og lægsti næturhiti fer niður fyrir kaldar 20°C. Slíkt köllum við peysuveður og drögum fram vaðmálspilsin.“