Ferðaskrifstofa í Venesúela auglýsir íslenska velferðarkerfið og há meðallaun á Íslandi. Í auglýsingunni segir að lágmarkslaun séu frá 500 þúsund allt upp í 850 þúsund krónur.
Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir í samtali við Vísir.is að málið sé alvarlegt en honum hefur lengi grunað að starfræktur sé iðnaður í Venesúela þar sem fólk er hvatt að koma til Íslands.
Ferðaskrifstofan Air Viajes birti auglýsinguna á Instagram en hún hefur nú verið fjarlægð.
Samkvæmt Vísi segir í auglýsingunni að kostirnir við Ísland séu margir meðal annars að hægt sé að fá dagpeninga í óákveðinn tíma.
„Ég hef haft efasemdir um það að sá mikli fjöldi flóttamanna sem hefur komið hingað frá Venesúela undanfarin misseri séu í raun flóttamenn í skilningi laganna; þeir séu hérna af efnahagslegum ástæðum í heimalandinu. Og það er ekki grundvöllur fyrir því að fá hér alþjóðlega vernd,“ segir Birgir í samtali við Vísi.
„Ég byggi þetta meðal annars á samtölum mínum við nefndarmenn í flóttamannanefnd Evrópuráðsins þar sem ég sit fyrir Íslands hönd. Og þessi auglýsing frá ferðaskrifstofu í Venesúela þar sem boðið er upp á ferðir til Íslands: Það er sagt að hér sé gott velferðarkerfi og peningar í boði við komuna til landsins, staðfestir bara það sem ég hef sagt í þinginu.“
Spurður um hvort þetta sé alvarlegt mál segir hann svo vera.
„Það myndi ég svo sannarlega segja. Ef rétt reynist þá er þetta misnotkun á velferðarkerfinu á Íslandi og á því verður að taka,“ segir Birgir.
Viðtal Vísis við Birgi má nálgast hér.