Ferða­menn þurfa ekki að sækja rakningarappið

„Við teljum ekki rétt eða ger­­legt að skylda ferða­­menn til að sækja appið, frekar höfðum við til skyn­­semi og þess að það verður virði í því fólgið að hafa appið,“ sagði Alma D. Möller land­lækni á blaða­manna­fundi í dag.

Ferða­menn verða ekki skyldaðir til að sækja rakningarappið svo­kallaða, en það getur auð­veldað mjög að rekja ferðir þeirra sem hugsan­lega koma til með að greinast með CO­VID-19. Skipu­lagðar skimanir vegna CO­VID-19 meðal þeirra sem koma til landsins hefjast næst­komandi mánu­dag.

Hring­braut fjallaði í dag um ræðu Þor­bjargar Sig­ríðar Gunn­laugs­dóttur, þing­manns Við­reisnar, í gær þar sem hún velti fyrir sér hvort nauð­syn­legt væri að nota appið nú þegar nær engin smit eru í sam­fé­laginu. Velti hún þessu fyrir sér meðal annars út frá per­sónu­verndar­sjónar­miðum.

Alma sagði á blaða­manna­fundinum að ferða­menn yrðu hvattir til að sækja appið en erfitt væri að gera það að skyldu. Alma í­trekaði þó, að því er segir í frétt Frétta­blaðsins, að per­sónu­verndar­sjónar­mið og frið­helgi einka­lífs væru í for­grunni.

„Öll gögn eru einungis geymd á snjall­­tækinu, ekki í skýi og ekki í mið­lægum gagna­­grunni,“ sagði Alma.