„Ferða­menn koma ekki til lands­ins til að sitja í sótt­kví í fjóra daga“

Jóhannes Þór Skúla­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka ferða­þjónustunnar, segist ekki fá betur séð en að ríkis­stjórnin hafi tekið með­vitaða á­kvörðun um að fórna þeim efna­hags­legu hags­munum sem felast í því að hafa ferða­þjónustuna opna.

Jóhannes segir þetta í sam­tali við mbl.is. Eins og kunnugt er til­kynntu yfir­völd um hertar að­gerðir við landa­mærin og þurfa allir þeir sem koma til landsins að fara í tvær sýna­tökur og sótt­kví í fjórta til fimm daga á milli þeirra. Þetta á líka við um ferða­menn frá löndum sem hingað til hafa verið talin örugg, Dan­mörku og Þýska­landi sem dæmi. Jóhannes á von á því að margir muni af­bóka ferðir sínar.

„Ferða­menn koma ekki til lands­ins til að sitja í sótt­kví í fjóra daga,“ segir hann og á auk þess von á frekari upp­sögnum í ís­lenskri ferða­þjónustu í ljósi þessara tíðinda. Þá segist hann ekki hafa búist við að stjórn­völd myndu ganga svona langt.

Í Bak­landi ferða­þjónustunnar á Face­boook hafa skapast líf­legar um­ræður um tíðindi dagsins og lýsa margir sárum von­brigðum eins og sést á mörgum at­huga­semdum:

„Þetta er svaka­legt högg ...“

„Þetta er orðið hrika­legt á­stand ....“

„Af­leit niður­staða sem mun hafa þungar af­leiðingar fyrir hag­kerfið.“

„Guð blessi ferða­þjónustu á Ís­landi.“