Ferða­menn í tómu tjóni: Ætluðu til Reykja­víkur en sátu fastir í Njarð­vík

Lög­reglan á Suður­nesjum kom er­lendu pari til að­stoðar í gær­morgun en parið hafði sam­band við lög­reglu og sagði farir sínar ekki sléttar.

Í skeyti frá lög­reglu kemur fram að parið hafi ætlað til Reykja­víkur en eitt­hvað varð til þess að þau settu ranga staðar­á­kvörðun inn í Goog­le Maps.

„Þau voru komin langt út fyrir Innri – Njarð­vík þegar þau höfðu sam­band og þar að auki búin að festa bílinn. Lög­regla kom þeim til að­stoðar og fylgdi þeim að af­leggjaranum að Reykja­nes­braut. Héldu þau svo leiðar sinnar á­leiðis til Reykja­víkur,“ segir í skeyti lög­reglu.

Þá segir einnig af ölvuðum öku­manni sem ók niður ljósa­staur á Reykja­nes­braut um helgina. Hann slapp við meiri­háttar meiðsl en bif­reið mannsins var fjar­lægð með dráttar­bif­reið.

Þá voru nokkrir öku­menn kærðir fyrir hrað­akstur og mældist sá sem hraðast ók á 145 kíló­metra hraða þar sem há­marks­hraði er 90 kíló­metrar á klukku­stund. Þá voru fá­einir teknir úr um­ferð vegna gruns um vímu­efna­akstur.