Ferða­maðurinn fundinn: „Því­líkar gleði­fréttir kæru vinir“

Bandaríski ferðamaðurinn sem leitað hefur verið af á gossvæðinu er fundinn heill á húfi. Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum staðfestir þetta í samtali við Fréttablaðið.

„Hann er fundinn heill á húfi,“ segir Úlfar í samtali við Fréttablaðið.

Scott Estill, 59 ára Bandaríkjamaður, varð við­skila við eigin­konu sína á gossvæðinu í Geldinga­dölum um miðjan dag í gær og hefur leit að honum staðið yfir síðan. Tugir björgunar­sveitar­manna, leitar- og spor­hundar auk þyrlu Land­helgis­gæslunnar hafa tekið þátt í leitinni.

Steinar Þór Kristinsson, sem er í svæðistjórn björgunarsveita á Suðurnesjum, segir í samtali við Fréttablaðið að um 260 manns hafi tekið þátt í leitinni í heildina. Rúmlega hundrað í dag.

„Því­líkar gleði­fréttir kæru vinir“

„Því­líkar gleði­fréttir kæru vinir,“ skrifar Lög­reglan á Suður­nesjum í Face­book færslu rétt í þessu.

„Maðurinn sem leitað hefur verið að síðan í gær fannst rétt í þessu heill á húfi. Hann er að­eins hruflaður og meiddur og er verið að flytja hann til skoðunar á sjúkra­hús. Af til­lits­semi við hann ætlum við að fjar­lægja fyrri færslu þar sem lýst var eftir honum. Eigið góðan og fal­legan dag kæru lands­menn,“ segir enn fremur í færslunni.