Ferðamaður sem kom hingað til lands og virti ekki reglur um sóttkví reyndist smitaður af COVID-19. Afleiðingarnar er þær að nokkur þeirra smita sem greinst hafa síðustu daga eru rakin til ferðamannsins.
Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í viðtali við Vísi.is. Eins og greint var frá í morgun greindust 10 smit í gær og vor 9 þeirra í sóttkví. Kórónuveiran hefur heldur sótt í sig veðrið undanfarnar vikur og var til dæmis gripið til hertra aðgerða um miðja síðustu viku.
Þórólfur segir að umræddur ferðamaður hafi greinst með veiruna í seinni skimun en augljóslega ekki virt reglur um sóttkví sem hann átti að vera í.
„Við erum að sjá þetta aftur og aftur að það er greinilegt að smit eru að leka hérna inn frá fólki sem er ekki að halda sóttkví,“ sagði Þórólfur.