Ferða­maður hand­tekinn fyrir að brjóta sótt­kví: Ölvaður og hlýddi ekki fyrir­mælum

Ferða­maður sem átti að vera í sótt­kví var hand­tekinn í nótt eftir að hann hafði verið til vand­ræða á hóteli í Reykja­vík og neitað að hlýða fyrir­mælum um sótt­kvína.

Lög­reglunni barst til­kynning frá hótelinu klukkan að verða tvö í nótt. Það segir ekki í tilkynningu lögreglunnar á hvaða hóteli maðurinn var en þó að hótelið sé í hverfi 105.

Maðurinn, sem átti að vera í sótt­kví, var þá orðinn ölvaður, var til vand­ræða á hótelinu og hunsaði öll fyrir­mæli starfs­fólks og lög­reglu.

Hann var vistaður í fanga­geymslu í nótt.