Erlendur ferðamaður á áttræðisaldri lést í gær þegar alda hreif hann með sér úr Reynisfjöru og út í sjó. Lögreglan greinir frá þessu, en unnið er að rannsókn slyssins.
Eiginkona mannsins lenti í sömu öldu en bjargaðist vegna snarræðis nærstaddra sem komu henni til bjargar.
Hjónin voru í stærri hóp í skipulagðri ferð á vegum ferðaskrifstofu.
Björgunarsveitir af Suðurlandi og úr Vestmanneyjum voru kallaðar til aðstoðar ásamt þyrlusveit Landhelgisgæslunnar vegna málsins. Aðstæður til aðgerða úr landi voru erfiðar og hættulegar viðbragðsaðilum vegna mikils brims.
Maðurinn var hífður upp í þyrluna strax og hún kom á staðinn en reyndist þá látinn.