Ferða­­kostnaður lækkaði um 78 milljónir: Utan­lands­ferðir verði undan­­tekning eftir CO­VID

Ferða­kostnaður fyrstu níu mánuði ársins 2020 fyrir A-hluta Reykja­víkur­borgar var 77,5 prósentum lægri en á sama tíma­bili ársins 2019, eða sem nemur tæpum 79 milljónum króna. Að sama skapi nam lækkun vegna B-hluta um 73 prósentum, tæpum 54 milljónum króna.

Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og á­hættu­stýringar­sviðs við fyrir­spurn á­heyrnar­full­trúa Mið­flokksins í borgar­stjórn Reykja­víkur sem lagt var fram á fundi borgar­ráðs í gær.

Fyrir A-hluta voru greiddar tæpar 4,4 milljónir í dag­peninga fyrstu níu mánuði ársins en á sama tíma á síðasta ári námu greiðslur vegna dag­peninga rúmum 20 milljónum króna. Greiðslur vegna far­gjalda námu rúmum 8,7 milljónum en í fyrra rúmum 37 milljónum.

Í bókun Vig­dísar Hauks­dóttur, borgar­full­trúa Mið­flokksins, sagði hún að í svarinu birtist stór­kost­legar fréttir fyrir út­svars­greið­endur í Reykja­vík.

„Loksins sparnaður. Hér er til­laga mín sem ég hef lagt tvisvar fram í borgar­stjórn, og verið felld jafn oft, að draga mjög úr utan­ferðum að raun­gerast.“

Kol­brún Baldurs­dóttir, borgar­full­trúi Flokks fólksins, lagði einnig fram bókun þar sem fram kom að allt of mikið fjár­magn á flest öllum sviðum borgarinnar hefði farið í ferðir er­lendis undan­farin ár.

„Með CO­VID lækkar þessi kostnaður eðli málsins sam­kvæmt nánast niður í ekki neitt,“ sagði Kol­brún sem bætti að lokum við:

„Nú má vænta þess að með reynslu fjar­funda­tækni þá sé ekki lengur nauð­syn­legt fyrir borgar­stjóra, borgar­full­trúa eða em­bættis­menn að ferðast er­lendis. Það er mat full­trúa Flokks fólksins að ferða­lög á kostnað út­svars­greið­enda eiga því að vera al­ger undan­tekning enda hægt að eiga öll sam­skipti í gegnum fjar­funda­búnað.“