Fer Brynjar í borgina? „Sjálf­stæðis­flokkurinn í dauða­færi“

Svo gæti farið að Brynjar Níels­son, fyrr­verandi þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, taki slaginn með Sjálf­stæðis­flokknum í næstu borgar­stjórnar­kosningum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í frétta­skýringu Ólafar Skafta­dóttur á nýjum við­skipta­f­rétta­vef Vísis, Inn­herja.

Eins og kunnugt er náði Brynjar ekki endur­kjöri á þing í þing­kosningunum í septem­ber en heimildir Inn­herja herma að hann gæti vel hugsað sér að taka slaginn næsta vor. Þá hafi hann verið hvattur til að taka af skarið.

Brynjar er þó talinn ó­lík­legur til að fara í toppslaginn heldur gæti hann hugsað sér sæti neðar á listanum. „Sjálf­stæðis­flokkurinn sé í dauða­færi í borginni, að hans mati,“ segir í frétta­skýringunni.

Hver verður odd­viti Sjálf­stæðis­flokksins er ó­víst en Ey­þór Arnalds mun að ó­breyttu gefa kost á sér til endur­kjörs. Þá er Hildur Björns­dóttir, sem skipar 2. sætið á lista Sjálf­stæðis­flokks í borginni, sögð geta hugsað sér að skora Ey­þór á hólm.

Bent er á að á­herslur þeirra séu ó­líkar; Ey­þór til­heyrir í­halds­samari armi flokksins en Hildur hinum frjáls­lyndari. Heimildir Inn­herja herma að þeim semji þó vel.

„Á­huga­vert verður, ef af odd­vita­slag milli þeirra verður, að sjá hvar hinn al­menni Sjálf­stæðis­maður stendur í grund­vallar­spurningum um fram­tíð Reykja­víkur­borgar en þar er helsta að­greiningin milli borgar­full­trúanna tveggja. Þá mun ef­laust skipta flokks­menn máli hvort þeirra telst lík­legra til að leiða flokkinn til sigurs og í fram­haldinu inn í meiri­hluta­sam­starf.“

Frétta­skýringu Inn­herja má lesa í heild sinni hér.