Fer Brynjar á Viðskiptablaðið? „Atvinnuumsókn þín hefur verið móttekin“

Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, veltir nú fyrir sér næstu skrefum eftir að hann datt af þingi. Brynjar, sem er sprenglærður lögfræðingur og reynslumikill sem slíkur, er einnig virkur á Facebook eins og landsmenn vita.

Í færslu í morgun skrifaði Brynjar um fjölmiðla – einu sinni sem oftar. Hann hefur verið duglegur að gagnrýna fjölmiðla en í morgun sá hann sérstaka ástæðu til að hrósa Viðskiptablaðinu. Brynjar sagði:

„Þögnin er gulls ígildi" er þýðing úr þekktum útlenskum dægurlagatexta. En það er lífsins ómögulegt fyrir suma að fylgja þessum heilræðum. Nú kemur stutt innslag um fjölmiðla.

Mér gengur best að fara á fætur á fimmtudagsmorgnum því þá bíður mín Viðskiptablaðið í pentaðri útgáfu. Þar er að finna umfjöllun og fréttir um stjórnmál og atvinnulífið. Þar eru blaðamenn sem geta skrifað skiljanlegan texta á góðri íslensku. Hef ekki á tilfinningunni að þeir séu mjög vinstri sinnaðir en veita þó stjórnmálaflokkunum aðhald og gagnrýna bæði til hægri og vinstri. Þar komast stjórnmálamenn ekki svo glatt upp með það að tala eins og forritaðir róbótar og leika fórnarlömb þegar spurningar eru óþægilegar eða erfiðar.“

Óhætt er að segja að Viðskiptablaðið fylgist vel með Facebook-síðu Brynjars og ekki leið á löngu þar til einhver þar á bæ – undir merkjum miðilsins – skrifaði eftirfarandi athugasemd við færslu hans: „Atvinnuumsókn þín hefur verið móttekin“. Hefur þessi athugasemd vakið mikla lukku.

Ekki virðast miklar líkur á að Brynjar ráði sig til starfa á Viðskiptablaðið því hann svaraði að bragði: „Ég myndi setja þessa umsókn ofan í skúffu. Eg þekki mitt heimafólk.“