Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði, greinir frá því á Facebook síðu sinni að hann hefði átt flug frá Akureyri til Reykjavíkur klukkan 13:20 í morgun, þegar hann var á leiðinni upp á völl fékk hann skilaboð um að fluginu hefði verið flýtt en þau skilaboð bárust tíu mínútum eftir að vélin fór í loftið.
Þóroddur segir innanlandsflugið vera nánast gagnslaust eftir að Icelandair tók við því, en áður hafði Air Iceland Express séð um það.
Þóroddur fékk sæti í næstu vél, en hún átti að fljúga 16:50. Þegar hann kíkti síðan á heimasíðu Isavia sá hann að þá þegar væri komin tilkynning um að vélinni hefði verið seinkað til 18:00.
„Þau ypptu öxlum uppi á flugvelli og sögðu að það hefði sennilega verið bilun einhvers staðar,“ segir Þóroddur í samtali við Fréttablaðið, aðspurður að því hvort hann hefði fengið einhverja skýringu á því af hverju fluginu var flýtt.
„Fyrir 25 þúsund kallinn sem ég borgaði fyrir þetta flug aðra leið hefði ég væntanlega getað keyrt báðar leiðir – verið kominn á svipuðum tíma suður og geta snattast þar um á bíl,“ segir hann í færslunni.
Þóroddur vill að Niceair blandi sér í innanlandsflugið.