Fengu kaldar kveðjur frá út­gerðar­stjóranum rétt fyrir jól: „Heldur að sjó­menn hafi ekki sál“

Þór­hildur Helga Þor­leifs­dóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir sam­skipti fjöl­skyldunnar við út­gerðar­stjóra Brims en eigin­maður hennar Bogi Theo­dór Ellerts­son hefur verið sjó­maður hjá út­gerðinni í fleiri ár. Þetta kemur fram í viðtali Fréttablaðsins við Þórhildi.

Bogi hefur lent í röð á­falla á síðustu árum og aldrei látið það hafa á­hrif á vinnu sínu. Bogi var síðan ná­tengdur harm­leiknum á Blöndu­ósi í ágúst og missti þar bestu vin­konu sína og var æsku­vinur hans fluttur milli heims og helju á sjúkra­hús. Í miðjum túr óskaði hann eftir því að fara í land þar sem hann var með öllu ó­vinnu­fær en út­gerðin neitaði að taka veikinda­vott­orðið gilt þar sem að sögn Þór­hildar væri á­fall ekki veikindi. Í síðustu viku þegar skipið átti að fara til veiðar að nýju þá var skip­stjóranum neitað að hafa Boga í á­höfn að sögn Þór­hildar.

Í sam­tali við Frétta­blaðið segir Þór­hildur það frá­leitt að líta ekki á­fall sem veikindi. „Svo það þurfa að vera standa í svona að þurfa hafa á­hyggjur af vinnu og af­komu þegar maður er í djúpri sorg.“

Hún var sjálf í á­falli eftir harm­leikinn og mætti hún allt öðru við­móti hjá sínum vinnu­veitanda.

„Ég fékk allan skilning, um­hyggju og utan­um­hald en það virðist bara vera núll svo­leiðis hjá sjó­mönnum,“ segir Þór­hildur.

„Bogi minn er búinn að vera í fleiri, fleiri ár hjá þessari út­­gerð og ekki fengið kvartanir undan störfum sínum, eigin­­lega þver­öfugt. Í ólgu­­sjó lífsins hefur Bogi fengið beyglur og brot á sálina en ekki látið mikinn bil­bug á sér finna. Alltaf staðið sína plikt og ekki tekið neinn auka­­frítúr þrátt fyrir mikinn sjó­­gang í lífinu síðast­liðin 7 ár,“ skrifar Þór­hildur í færslu en hún gaf Frétta­blaðinu leyfi til að fjalla um málið.

Frá árinu 2016 hefur Bogi misst 6 nána ættingja og vini löngu fyrir aldur fram segir Þór­hildur þar á meðal 49 ára svila úr krabba­­meini, 57 ára mág úr heila­blóð­­falli árið, 56 ára mág­­konu úr krabba­­meini árið 2020, 15 ára barna­barn úr sjálfs­vígi í fyrra og 55 ára vin­­konu úr krabba­­meini sama ár.

„Aldrei hefur hann tekið sér auka­­frítúr vegna þessara á­­falla og reyndar verið út á sjó í helming þessa jarðar­fara,“ skrifar Þór­hildur en segir síðan í sam­tali við Frétta­blaðið að auð­vitað fylgir það starfinu.

„Það er náttúru­lega samt bara hans á­kvörðun. Það er ekkert út­gerðinni að kenna þegar þú ert sjó­maður á frysti­togara veistu alveg að þú ert mánuð og mánuð,“ segir Þór­hildur en síðan kemur á­fallið í ágúst.

„Bogi er staddur úti á sjó og fær brot­­sjó á sálina. Ráðist er inn til nánustu vina okkar hjóna með þeim af­­leiðingum að besta vin­­kona Boga deyr og allra besti æsku­vinur er fluttur milli heims og helju á gjör­­gæslu og lengi var tví­­­sýnt um líf hans. Bogi út á sjó og fær á­­fall, á­­fall sem er stað­­fest að tveimur læknum- heimilis­­lækni hans og trúnaðar­­lækni fyrir­­­tækisins. Í fyrsta sinn í öllum þessum missi óskar hann eftir veikinda­fríi, enda ó­­vinnu­­fær með öllu vegna líkam­­legra ein­­kenna á­­falls,“ segir Þór­hildur.

Boga tókst að koma sér í land segir Þór­hildur enda væntan­­lega hættu­­legur sjálfum sér og öðrum við vinnu í þessu á­standi.

„En þegar kom að upp­­­gjöri túrsins, þá komu kaldar kveðjur frá út­­gerðar­­stjóranum sem neitaði að taka mark á veikinda­vott­orðinu, á­­fall væri ekki veikindi og hótaði því að Bogi fengi ekki endur­­ráðningu eftir slipp ef hann færi með málið lengra hjá sjó­manna­­fé­laginu. Ekki múkk um sam­úð eða skilning frá þessum stjóra- sem heldur greini­­lega að sjó­­menn hafi ekki sál.“

Um mánaða­mótin septem­ber októ­ber hafði Bogi sam­band við for­­stjóra Brims að sögn Þór­hildar sem gekk strax í það að Bogi fékk túrinn greiddan sem veikinda­túr.

„Ekki var hægt að skilja orð for­­stjórans öðru­­vísi en að Bogi ætti tryggt pláss um borð eftir slipp, þannig að hann hefur ekkert verið að leita sér að nýju plássi. Í síðustu viku var komið að því að skipið héldi á veiðar á ný- eftir slippinn. Skip­­stjórinn vill hafa Boga bader á­­fram og sendir á­hafnar­lista á út­­gerðar­­stjórann. Hvað gerist þá? Út­­gerðar­­stjórinn neitar skip­­stjóranum um að hafa Boga í á­höfn, Bogi bader skal aldrei stíga fæti aftur um borð á Vigra. Út­­gerðar­­stjórinn er yfir­­­maður skip­­stjórans sem þarf að koma þessum ömur­­legu skila­­boðum til Boga. „Frá­bær“ fram­koma svona korter í jól hjá móðguðum út­­gerðar­­stjóra, sem ég held að hafi hrein­­lega ekki sál öfugt við alla þá sjó­­menn sem ég þekki,“ segir Þór­hildur.

Hún segir Boga ekkert hafa heyrt frá Brim en hann ræddi við tvo út­gerðar­menn á föstu­daginn og búinn að fá vinnu. „Hann fer á sjó frá Grinda­vík eftir ára­mót. Það er alla­vega einn skip­stjóri búinn að bjóða honum pláss,“ segir Þór­hildur.