Merk tímamót urðu hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í gær þegar útkallslið slökkviliðsins varð að einum sóttvarnarhóp á nýjan leik og féllust slökkviliðsmenn í faðma.
Vaktaskipti hafa verið óhefðbundin hjá slökkviliðinu í marga mánuði sökum kórónuveirufaraldursins. Þess hefur ítrekað verið gætt að vaktir hittust ekki. Sumir hverjir höfðu því ekki hitt sumt samstarfsfólk sitt í fleiri mánuði.
„Þetta breyttist í gær og var mikil ánægja með að geta hist og talað saman á vaktaskiptum. Áfram verður mikil áhersla á persónubundnar sóttvarnir en þetta var stórt skref fram á við,“ segir í Facebook færslu slökkviliðsins.
Í gær voru merk tímamót hjá okkur þegar allt útkallsliðið okkar varð einn sóttvarnahópur. Í marga mánuði hafa...
Posted by Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. on Sunday, 21 February 2021