Felix um fundinn í morgun: „Vá hvað Þór­ólfur, Víðir og Páll Matt voru stór­kost­legir“

Felix Bergs­son fjöl­miðla­maður og skemmti­kraftur segir að nú sé mikil­vægt að standa saman um þær að­gerðir sem á­kveðið hefur verið að grípa til vegna út­breiðslu kórónu­veirunnar.

Felix horfði á upp­lýsinga­fund al­manna­varnar­deildar ríkis­lög­reglu­stjóra í morgun og hreifst mjög af þeim sem standa í brúnni.

„Vá hvað Þór­ólfur, Víðir og Páll Matt voru stór­kost­legir á upp­lýsinga­fundinum áðan. Svo rök­fastir, á­kveðnir, vel máli farnir og án allra stæla. Það er mikil gæfa fyrir okkur að hafa svona fólk í brúnni. Takk! Og stöndum nú saman um þessar að­gerðir!,“ sagði hann á Twitter-síðu sinni.

Felix er svo í at­huga­semd beðinn um að í­mynda sér hvað við værum heppin af stjórn­mála­mennirnir okkar væru eins. Felix ætlar þó að halda á­fram að ein­blína á það já­kvæða. „Ja, mér finnst nú raunar fullt af mjög hæfu fólki þar á meðal og hef á­kveðið að fókusera frekar á það fólk en hina :)“