Felix segir um­ræðuna rifja upp gamlan kvíða sem hann upp­lifði alla tíð

Felix Bergs­son, leikari og fjöl­miðla­maður, hefur á­hyggjur af um­ræðuna sem er að skapast hér á Ís­landi eftir að Sund­sam­band Ís­lands á­kvað að kjósa með því að banna trans­konum að keppa í kvenna­flokki. Hann segir um­ræðuna minna sig á þá tíð þegar sam­kyn­hneigðir lentu í sam­bæri­legum for­dómum.

„Þegar ég sé um­ræðuna sem skapast nú um trans­fólk í fjöl­miðlum í kjöl­far trans­fóbískrar af­stöðu þeirra sem stjórna málum í sund­heiminum, rifjast upp gamli kvíðinn sem ég upp­lifði alla tíð þegar mál­efni sam­kyn­hneigðra voru rædd. Sér­stak­lega áður en ég kom út úr skápnum,“ skrifar Felix.

„Þetta var um­ræðan sem negldi okkur svo mörg inní skápinn, um­ræða byggð á hatri, vanku­náttu og botn­lausum for­dómum. Sjálf­skipaðir fræðingar ruddust fram og vissu allt um okkur "kyn­villingana", kyn­hegðan okkar, ástar­líf, meinta geð­veiki, hvernig við smituðum hvert annað af ó­eðli­legum hugsunum, hvernig við plötuðum börn til fylgi­lags, hvernig við lögðumst á börn, hversu tak­markaðar lífs­líkur okkar væru vegna í­myndaðrar kyn­hneigðar okkar, hvernig gvuð væri að refsa okkur, hvernig við gætum ekki verið fjöl­skylda og alið upp eðli­leg börn og svo fram­vegis og svo fram­vegis. Homminn var á­kveðin steríó­týpa, lesbían önnur. Það átti að halda okkur frá í­þrótta­starfi. Það átti að halda okkur frá opin­berum em­bættum,“ skrifar Felix.

„Helst átti að loka okkur inni, læsa og henda lyklinum. Ég finn inni­lega til með öllu hin­segin fólki og að­stand­endum þeirra þegar svona stormur geysar. Sér­stak­lega hugsa ég til trans­fólks og kyn­segin ein­stak­linga. Hatrið í garð þeirra er gjör­sam­lega yfir­gengi­legt. Skorturinn á sam­kennd al­gjör. Skömmin þeirra sem leiða þessa um­ræðu er mikil.

Þess vegna vil ég bara segja - munið að þið eruð ekki ein. Við erum miklu fleiri sem styðjum bar­áttu ykkar fyrir mann­virðingu og eðli­legu lífi á ykkar for­sendum. Gefist ekki upp. Sækið ykkur stuðning og ljós. Við munum sigra að lokum. Þessi stormur gengur yfir. Lifi ljósið,“ skrifar hann lokum.