Felix Bergsson opnar umræðu á samfélagsmiðlinum Twitter í dag um hvort það sé rétt að íbúar í Fossvogi séu á móti nýrri sundlaug í Fossvogsdalnum því þar verða ekki næg bílastæði.
Fjölmargir taka til máls og virðist vera að þarna sé í raun alvöru óánægja á ferð. Daníel Rúnarsson skrifar meðal annars að það síðasta sem hann heyrði væri að það yrðu engin bílastæði við sundlaugina og því eru íbúar í þeim húsum sem eru næst sundlauginni hræddir við að gestir fari að leggja upp á alla kanta og stíga í kring.
Ágústa B. Kettler tekur einnig og segir að það sé vægast sagt mikil andstaða.
Sjónvarpsmaðurinn Gísli Marteinn deilir tístinu hans Felix og spyr: „Er þetta í alvöru svona? Á einhver einhverja linka eða skjáskot af andstöðu við þessar hugmyndir?“
Ég spyr einsog Felix: Er þetta í alvöru svona? Á einhver einhverja linka eða skjáskot af andstöðu við þessar hugmyndir? https://t.co/Xj77yjO04a
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) August 8, 2022
Síðasta sem ég heyrði þá voru engin (0) bílastæði plönuð við sundlaugina og því eru íbúar í þeim húsum sem næst eru sundlauginni hrædd við að gestir fari að leggja uppá alla kanta og stíga í kring.
— Daníel Rúnarsson (@danielrunars) August 8, 2022
Er það? Ég veit hins vegar að það vantar ekkert upp á sundlaugar í Kópavogi sem er að fara í þetta samstarfsverkefni án fjármögnunar...
— Sara Dögg (@saradoggsvan73) August 8, 2022
Hef ekki tekið eftir mikilli andstöðu nei en fólk neðst í dalnum hefur áhyggjur af því að þar bætist mikið í traffík og lagt í stæðin þar. Sem er ekki ólíklegt scenario. Við erum samt búin að bíða eftir þessari laug í ca. 20 ár þannig myndi segja að fólk sé almennt mjög peppað!
— una stef (@unastef) August 8, 2022