Gunnar Þorsteinn Halldórsson íslenskufræðingur verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag klukkan 13. Gunnar lést á Landspítalanum þann 19. október síðastliðinn, sextugur að aldri, eftir baráttu við krabbamein. Fjölmargir minnast Gunnars í minningargreinum í Morgunblaðinu í dag.
Gunnar lauk BA-námi í íslensku frá Háskóla Íslands árið 1986 en áður hafði hann meðal annars stundað nám í norrænum fræðum við Uppsalaháskóla og frönskunám í Nancy. Þá lauk hann meistaraverkefni sínu í íslensku árið 2002.
Hann starfaði við kennslu, dagskrárgerð hjá Rás 2, var leiðsögumaður og rak gistiheimili í miðborg Reykjavíkur svo fátt eitt sé nefnt. Þá kenndi hann íslensku við Sorbonne-háskóla í París árin 2004 til 2010.
Meðal þeirra sem minnast Gunnars í dag eru Felix Bergsson og Baldur Þórhallsson. Þeir kynntust honum fyrir rúmum 20 árum þegar þeir keyptu hús Gunnars og fjölskyldu hans á Vesturgötunni í Reykjavík.
„Gunnar hafði endurbætt þetta gamla hús byggt árið 1882 af þeirri snilld sem honum var einum lagið. Hann var einstaklega handlaginn og hvert einasta handtak við endurbætur á Vesturgötunni var úthugsað. Hann hafði hannað draumahúsið okkar,“ segja þeir og bæta við að einn daginn hafi hann komið við með dóttur sinni og tilkynnt að einn góðan veðurdag myndi hún kaupa húsið aftur – hvort sem þeim líkaði betur eða verr. Upp frá því hafi þeir orðið miklir vinir.
Þeir bæta svo við að þeir minnist Gunnars fyrst og fremst fyrir dásamlegar stundir í París í gegnum árin.
„Nú síðast í upphafi árs áttum við dásamlegar stundir í París þar sem við þræddum sögufrægar götur Mýrarinnar og uppáhaldsbarina okkar. Gunnar kenndi okkur að njóta borgarinnar,“ segja þeir.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, minnist Gunnars einnig í Morgunblaðinu. „Gunnar Halldórsson var hlýr maður og drengur góður. Ég sakna vinar í stað og votta fjölskyldu hans innilega samúð,“ segir Vigdís meðal annars.
Útför Gunnars Þorsteins fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 3. desember 2020, klukkan 13 að viðstöddum nánustu ættingjum. Streymt verður frá útförinni hér.