Felix og Baldur minnast Eddu: „Mikil­vægur hlekkur í vina­keðju sem barðist fyrir betra lífi“

Felix Bergs­son og Baldur Þór­halls­son minnast Eddu Hrafn­hildar Björns­dóttur sem lést þann 11. ágúst síðast­liðinn. Edda, sem var kennara­menntuð, var meðal annars for­stöðu­maður Rauða­kross­hússins og þá var hún virk í starfi Hin­segin kórsins svo fátt eitt sé nefnt.

„Edda Hrafn­hildur kom inn í líf okkar á miklum um­brota­tímum í lífi sam­kyn­hneigðra á Ís­landi rétt fyrir alda­mótin. Við kynntumst henni fyrst í Sam­taka­húsinu á Lindar­götu þar sem ein­stak­lega já­kvætt við­mót hennar vakti at­hygli okkar strax í upp­hafi. Ekki veitti af já­kvæðni og gleði í bar­áttunni fyrir fullum mann­réttindum sem oft var erfið. Við vorum á fullu í réttinda­bar­áttunni og höfðum öðlast sjálfs­traust eftir að lögin um stað­festa sam­vist höfðu náð fram að ganga nokkrum árum fyrr,“ segir í grein þeirra Felix og Baldurs sem birt voru á Face­book í dag.

Á þessum tíma voru Hin­segin dagar og gleði­gangan að verða til og um þetta leyti starfaði Edda Hrafn­hildur hjá Rauða krossinum sem for­stöðu­maður Rauða­kross­hússins.

„[Hún] þekkti vel af eigin raun erfið­leika sam­kyn­hneigðra ung­menna sem til hennar leituðu. Edda heillaði okkur með fal­legri fram­komu. Hún var glæsi­leg kona og fal­leg, hrein og bein og skemmti­leg og al­gjör­lega með hjartað á réttum stað. Það var alltaf gaman að hitta Eddu Hrafn­hildi. Hún sat fyrir svörum á mikil­vægum fundum sem við héldum eftir sýningar á Jafningjanum og svaraði spurningum þeirra sem vildu skilja líf sam­kyn­hneigðra af þolin­mæði og visku. Hún var mikil­vægur hlekkur í vina­keðju sem barðist fyrir betra lífi,“ segir meðal annars í greininni.

„Svo tekur lífið yfir eins og gerist og gengur og sam­veru­stundum fækkaði. Það var samt alltaf svo gaman að rekast á Eddu Hrafn­hildi. Við hittum hana á Hin­segin dögum og við rákumst á hana þegar hún þjónaði á Jóm­frúnni,“ segir í grein þeirra Felix og Baldurs sem bæta við að minningar um góða mann­eskju og vin­konu lifi.

Út­för Eddu, sem var fædd árið 1959, fór fram í kyrr­þey.