Felix Bergsson er ekki parsáttur með fréttaflutning RÚV af viðtali sem hann mætti í á Rás 2. Felix les RÚV pistilinn í Facebook færslu um málið.
„Þetta er skrýtin fyrirsögn á frétt sem unnin er upp úr spjalli sem ég átti við Þossa minn um Rokk í Reykjavík og áhrif myndarinnar á það sem eftir fylgdi, t.d. Greifana,“ skrifar Felix. Fyrirsögnin á fréttinni er „Voru lengi illa spilandi band“ og vill Felix greinilega ekki kannast við að hafa sagt það.
Haft er eftir Felixi í frétt RÚV:
„Og Greifarnir, ég vona að vinir mínir fyrirgefi mér fyrir að segja þetta, voru í rauninni illa spilandi band lengi framan af.“ En æfingin skapi þó meistarann og á einhverjum tímapunkti hafi bandið orðið frábært. „En til að byrja með var það alls ekki þannig.“
Felix virðist gáttaður á að þetta hafi verið dregið í fyrirsögn:
„Ég hvet ykkur til að hlusta á spjallið en þar segi ég einmitt að Greifarnir hafi orðið hörkuband í live spilamennsku en það gerðist ekki fyrr en með reynslu og spilamennsku. Við fylgdum orðum Einars Arnar Benediktssonar - það skiptir ekki máli hvað maður getur heldur hvað maður gerir,“ skrifar Felix, sem skrifar að endingu:
„Látið ekki klikkbeitið trufla.“