Fjölmiðlamaðurinn og skemmtikrafturinn Felix Bergsson segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fara í vörn fyrir óbólusetta með því að hafna hugmyndum um bólusetningaskyldu.
„Mér fannst skrýtið að sjá nýjan heilbrigðisráðherra fara í vörn fyrir andstæðinga bólusetninga þegar tölur gærdagsins segja okkur að óbólusettir eru 13 sinnum líklegri til að fá covid en þeir sem hafa fengið örvunarskammt,“ segir Felix á Twitter. „En ráðamenn verða að tala skýrt og fræðslan var ekki til staðar í þessum orðum hans.“