Felix Bergsson: „Ógeðslegur maður“

Felix Bergsson, útvarpsmaður, leikari og þúsundþjalasmiður, er lítill aðdáandi sálfræðingsins og fyrirlesarans Jordans Peterson.

Jordan hélt fyrirlestur hér á landi síðastliðinn laugardag og er þetta í annað sinn sem hann kemur til Íslands. Hann hélt einnig fyrirlestur hér á landi árið 2018 og virðist hann eiga dyggan hóp aðdáenda hér á landi. Það var að minnsta kosti uppselt á viðburðinn á laugardag.

Óhætt er að segja að Jordan Peterson sé umdeildur maður og eru það einkum hugmyndir hans og kenningar um eðlislægan mun kynjanna sem vakið hafa athygli. Þykja þær stangast á við það sem kennt er í nútíma femínisma og telja margir hann aðeins höfða til karlmanna í kreppu sem eiga erfitt með að máta sig við kenningar femínismans og það sem hann boðar.

Eyvindur Karlsson, rithöfundur og tónlistarmaður, gerði Peterson að umtalsefni á Facebook-síðu sinni í gær og kafla í fyrirlestri hans sem sneri að trans fólki sem Fréttin.is fjallaði sérstaklega um.

„Jæja, getum við nú hætt að umbera það að fólki finnist rosa edgy og kúl að fíla þennan bjána,“ sagði Eyvindur sem hélt áfram: „Bæti við að fólki sem finnst í lagi að gera svona lítið úr tilverurétti transfólks má endilega fjarlægja mig af vinalistanum sínum. Við getum verið ósammála um flest, en ekki það hverjir eiga skilið að vera til.

Felix Bergsson skrifaði athugasemd við færslu Eyvindar og vandaði Peterson ekki kveðjurnar: „Ógeðslegur maður,“ sagði hann og birti ælutjákn með.

Eins og að framan greinir vakti koma Jordan til Íslands mikil viðbrögð á samfélagsmiðlum. Þorsteinn V. Einarsson, sem heldur úti Karlmennskunni, varpaði fram áleitnum spurningum á Twitter-síðu sinni: