Felix Bergs­son minnist þess þegar hann hitti Bill og Hillary Clin­ton: „Já, þetta gerðist í al­vöru!“

Felix Bergs­son, út­varps­maður, leikari og þúsund­þjala­smiður var spurður á sam­fé­lags­miðlum í dag hvort það væri satt að hann hafi hitt Bill og Hillary Clin­ton þegar þau voru for­seta­hjóna Banda­ríkjanna.

Felix svaraði því um hæl að svo væri rétt og rifjaði upp fyrir fólki hversu stressaður hann var þegar hann hitti þau.

„Já þetta gerðist í al­vöru! ég hitti þau hjónin í Haag í Hollandi árið 1997 þegar þau fóru í göngu­túr til að hitta al­múgann. Voru þar á ráð­­stefnu sem Baldur Þór­hall­son
var líka á en ég var geymdur úti á götu. og þar hitti ég hjónin knáu. raunar klúðraði ég þessu illi­­lega því ég varð svo stressaður þegar ég stóð fyrir framan þau að ég fór bara að flissa eins og fífl og sagði svo: I of­­fer you greetings from Iceland Mr Presi­dent. ég skil þessa setningu ekki enn. I of­­fer you greetings!! hvað er að?? en sem­sagt svona gerðist það,“ sagði Felix.

Þórunn sem upp­haf­lega bað Felix um söguna fylgdi eftir með spurningu og spurði hvort að Gunni Helga hafi þá haft rangt fyrir sér þegar hann sagði að þeir fé­lagar þekktu EKKI Bill Clin­ton.

„Já! Ég var að reyna að segja honum það! Hins vegar viður­­kenni ég að ég hitti aldrei Yasser Ara­fat…,“ svaraði Felix.