Felix Bergsson, útvarpsmaður, leikari og þúsundþjalasmiður, virðist vera mjög ánægður með nýjasta verk Baltasars Kormáks, Kötlu, sem nú nýtur mikilla vinsælda á Netflix.
Felix virðist þó ekki vera ánægður með eitt lítið smáatriði í þáttunum eins og hann bendir á í skemmtilegri færslu á Twitter.
„Katla er geggjuð en ein mistök verða varla fyrirgefin. Það er hárkollan á Baltasar Breka,“ segir hann en persóna Baltasars Breka Samper í þáttunum, Kjartan, skartar þykku og flottu hári á höfði – eitthvað sem Baltasar Breki á ekki að venjast enda nauðasköllóttur eins og Felix.
„Hún er ekki kúl. Sko svona glæsilegur fulltrúi minnar sköllóttu kirkju á bara að vera eins og hann er,“ segir Felix og brosir væntanlega út í annað. Með færslunni fylgja svo eftirfarandi myllumerki: #stolt #boldpride #katlanetflix
Katla er geggjuð en ein mistök verða varla fyrirgefin. Það er hárkollan á @BaltasarBreki Hún er ekki kúl. Sko svona glæsilegur fulltrúi minnar sköllóttu kirkju á bara að vera eins og hann er!! #stolt #boldpride #katlanetflix pic.twitter.com/bvmNF7JShE
— Felix Bergsson (@FelixBergsson) June 26, 2021