Felix Bergsson fór í Hagkaup: Þetta fékk hann fyrir 5.800 krónur

Felix Bergsson, leikari, útvarpsmaður og söngvari, skellti sér í Hagkaup í gær og keypti í matinn. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir það sem hann fékk fyrir þær 5.800 krónur sem hann borgaði.

Felix segir frá þessu á Twitter og birtir mynd máli sínu til stuðnings. Hann vísar í viðtal Fréttablaðsins í gær við Ástu Sigríði Fjeldsted, framkvæmdastjóra Krónunnar, sem sagði meðal annars eftirfarandi þegar hún var spurð hvort matvælaverð á Íslandi væri hátt samanborðið við önnur lönd:

„Ég hef verið að skoða þetta og ég er ekki viss um að verðlag hér heima sé jafnhátt og haldið er fram.“

Felix gefur lítið fyrir þetta ef marka má færslu hans á Twitter. Hann segir:

„Konan í Krónunni segir í Fréttablaði viðskiptalífsins að matvara sé ekki svo dýr á Íslandi. Ég fór í Hagkaup og borgaði 5800 kall fyrir draslið á myndinni. 5800 krónur. 39 evrur. Það get ég fullyrt með nokkurri vissu er ekki ódýrt fyrir sælgæti, álegg og jarðarber.“

Felix bætir svo við að hann hafi skoðað verð á sömu, eða svipuðum vörum, í Krónunni og fengið út 5.432 krónur. „Jibbí! Alltaf að græða!,“ segir hann.