„Félagssálfræðileg tilraun á landsmönnum heldur áfram“

Gunnar Smári Egilsson formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins bregst við skýrslu ríkisendurskoðunar á sölu Íslandsbankar.

„Félagssálfræðileg tilraun á landsmönnum heldur áfram, um hversu mikið þol mannskepnan hefur fyrir vanhæfni og spillingu Sjálfstæðisflokksins,“ segir Gunnar Smári.

„Kerfið er þannig að þeir sem sýnt hafa mikið þol gagnvart þessu færast upp í Framsókn eða Vg. Þau sem virðast njóta spillingar og telja fúsk til eftirbreytni færast alla leið upp í Sjálfstæðisflokkinn,“ skrifar formaðurinn.

„Samkvæmt nýjustu könnun Gallup eru 24% landsmanna gerspillt og 22% til viðbótar láta sér hana vel lynda.“