Valgerður Árnadóttir, fyrrum starfsmaður Eflingar, segir vanvirðingu gagnvart starfsfólkinu fordæmalausa í samtali við Fréttablaðið en hún er ein þeirra sem fékk uppsagnarbréf um miðja nótt.
Hún segistt vita til þess að stór hópur starfsfólks hafi fengið uppsagnarbréf í nótt. Hún sjálf hefur undanfarna mánuði verið í veikindaleyfi og ætlaði sér ekki að snúa aftur til starfa.
Spurð hvort hún telji líklegt að starfsfólk sæki um stöður sínar aftur, eins og Baráttulistinn hefur sagt að þau hvetji til, segir hún að hún telji það ólíklegt.
Vanvirðingin fordæmalaus
Valgerður segir í langri færslu sem hún deildi í morgun um uppsagnarbréfið að hún hafi verið í veikindaleyfi frá því að hún lenti í slysi síðasta sumar. Hún fer það yfir sögu mála og segir að eftir slysið hafi henni verið tilkynnt að sviðið sem hún starfaði hjá, félags- og þróunarsvið, yrði lagt niður og hún hafi ákveðið að snúa ekki aftur.
„Stuttu eftir að sviðið sem ég starfaði hjá var lagt niður var “skrifstofa félagsmála” stofnuð og Viðar Þorsteinsson settur þar yfir, skrifstofa hans og starfsfólk þess þjónaði sama tilgangi og „félags- og þróunarsvið” gerði áður svo „skipulagsbreytingin” var nánast engin, nema til þess fallin að losa sig við sumt starfsfólk og setja Viðar yfir einingu sem hann myndi geta sætt sig við eftir að fjölda kvartanna í hans garð gerðu honum erfitt um vik að starfa áfram sem framkvæmdastjóri,“ segir Valgerður og að hún hafi stutt þær konur sem kvörtuðu undan eineltistilburðum Viðars Þorsteinssonar og segir að hún hafi beðið Sólveigu að styðja við þær.
Það gerðist ekki og áréttar Valgerður í færslunni að margt af því sem Viðar og Sólveig Anna hafa sagt um þetta starfsfólk sé rangt og sumt hrein lygi.
„Ekki var þarna um einhverja „starfsmenn fyrri stjórnar” að ræða eins og þau Viðar hafa viljað halda fram, þau réðu sjálf þessar konur, ekki var um eitthvað „plott fyrrum trúnaðarmanns Eflingar” að ræða eins og þau hafa einnig haldið fram og ekki var um að ræða einhverja „leifar af gamalli vinnustaðamenningu Eflingar”.“
Hefur ekki tjáð sig vegna fjölskyldutengsla
Hún segir að hingað til hafi hún ekki tjáð sig opinberlega um þetta vegna fjölskyldutengsla við Sólveigu Önnu en amma Valgerðar og faðir Sólveigar Önnu voru systkini.
„Fjölskyldutengslin eru frekar náin og þess vegna hef ég ekki viljað tjá mig, auk þess sem ég var í veikindaleyfi. En núna fékk ég nóg og þetta er svo óforskammað, þessi framkoma,“ segir Valgerður.
Hún bendir á í færslu sinni að ef einhver annar vinnustaður hefði tilkynnt um hópuppsagnir til að svo endurráða starfsfólk á lægri kjörum hefði Efling verið fyrst á staðinn til að verja þau.
„Ég er djúpt vonsvikin með stjórn og trúnaðarráð Eflingar og öll þau sem í blindni trúa eftiráskýringum sem standast ekki skoðun. Ég var stolt af því að starfa fyrir Eflingu og trúði því að okkar barátta væri réttlát og árangursrík fyrir félagsmenn. Vanvirðing við okkur starfsfólkið er fordæmalaus,“ segir hún að lokum í færslunni sem má sjá hér að neðan.