Fékk sjö mánaða dóm fyrir að örkumla konu: Próflaus á stolnum bíl og undir áhrifum

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í sjö mánaða fangelsi fyrir hegningar-, umferðar- og lögreglulagabrot. Maðurinn var ákærður fyrir að stela bifreið í Reykjavík föstudagskvöldið 17. janúar og aka henni heimildarlaust um götur Reykjaness.

Maðurinn var sviptur ökurétti og ófær um að stjórna bifreiðinni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja. Maðurinn sinnti ekki merkjum lögreglu um að stöðva bifreiðina sem gefin voru til kynna með forgangsljósum og hljóðmerkjum. Eftirför hófst og ók maðurinn bifreiðinni allt of hratt og án tillitsemi og varúðar.

Eftirförin endaði á Sandgerðisvegi, þar sem talið er að maðurinn hafi ekið á allt að 138 kílómetra hraða, þar sem hann missti stjórn á bifreiðinni og lenti framan á bifreið sem kom á móti. Tvær konur voru í þeirri bifreið og slasaðist farþegi lífshættulega í slysinu.

Fyrir dómi kom fram að farþeginn hafi hlotið svokallaða fjöláverka; mikið loft í mjúkpörtum hægra megin í hálsi, loftbrjóst hægra megin, marbletti í hægra lunga, rifbrot, brot á brjóstbeini, fyrirferð í nýrnahettu, brot og liðhlaup í hægri mjaðmarlið, brot á hægra sköflungsbeini og sperrilegg, brot á framhandleggjum beggja vegna, vöðvaskaða á hægra læri og stórt drep í hægra heilahvel vegna skaða á stórri slagæð til heilans.

„Með akstrinum raskaði ákærði umferðaröryggi á alfaraleið og stofnaði á ófyrirleitinn hátt lífi og heilsu vegfarenda sem leið áttu um ofangreindar götur á sama tíma, þar á meðal lögreglumanna sem reyndu að stöðva aksturinn, í augljósan háska.“

Maðurinn játaði sök fyrir dómi og samþykkti auk þess bótakröfu upp á fjórar milljónir króna.

Hann hefur áður komist í kast við lögin, meðal annars fyrir þjófnaðarbrot, nytjastuld og fíkniefnaakstur. Í niðurstöðu dómara kemur fram að brotin hafi verið alvarleg og valdið stórkostlegu og varanlegu heilsutjóni fyrir konuna sem slasaðist lífshættulega. Þá hafi konan sem sat undir stýri einnig slasast.

Maðurinn sætti gæsluvarðhaldi frá 19. janúar til 4. maí 2020 er hann hóf afplánun á öðrum dómi sem kveðinn var upp í apríl það ár.

Þá kom fram fyrir dómi að fyrir liggi umsögn frá fangelsinu á Hólmsheiði þar sem fram kemur að maðurinn hafi verið í góðum samskiptum við aðra fanga og fangaverði, iðinn við vinnu og stundi nám í bataskólanum. Þá taki hann virkan þátt í AA-starfi og sé nú formaður sinnar AA-deildar. „Af umsögninni má ætla að betrunarvist ákærða hafi skilað árangri og að hann vilji hverfa af fyrri braut.“

Hæfileg refsing var ákveðin sjö mánuðir í fangelsi, en til frádráttar kemur gæsluvarðhald sem maðurinn sætti í þrjá og hálfan mánuð eftir slysið. Auk þess var honum gert að greiða konunni sem slasaðist alvarlega fjórar milljónir króna í bætur og rúmar 3,5 milljónir í sakarkostnað.