Fékk óvænta sendingu frá Birni Inga

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri á Viljanum og rithöfundur, hefur gefið út bók um COVID-19. Er hann löngu orðinn þekktur frá upplýsingafundum almannavarna en hann hefur sennilega mætt á fleiri fundi en þríeykið Alma Möller, Víðir Reynisson og Þórólfur Guðnason.

Hann hefur síðustu daga sent afrit af bók sinni á sérvalda aðila, þar á meðal Hafsteinu Guðmundsdóttur.

„Þegar ég kom heim, haldið þið ekki að það hafi beðið mín sending í póstkassanum,“ sagði Hafsteina á Instagram story í dag. Segir hún sendinguna hafa aldeilis verið skemmtilega.

„Ég er alla vega fáránlega spennt að byrja að lesa,“ sagði Hafsteina. Þá fékk hún persónuleg skilaboð og áritun frá Birni Inga.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, er einnig komin með bókina í hendur eins og má sjá á færslu sem Björn Ingi birti á Instagram.