Fékk kærkomna hvíld í fangaklefanum – Einar Ágúst í Mannamáli

Einar Ágúst Víðisson, söngvari er gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli í kvöld, fimmtudag.

Hinn kunni söngvari Skítamórals austan frá Neskaupsstað og Reyðarfirði var í kjarna íslensku hljómsveitarsenunnar rétt fyrir síðustu aldamót.

Fyrir tveimur áratugum sömuleiðis tók Einar Ágúst þátt í Eurivision fyrir Íslands hönd. Hann hefur hins vegar síðan en lifað margan lífsháskann vegna eiturlyfjafíknar og stjórnleysis.

Einar Ágúst upplifði gríðarlegar vinsældir með Skítamóral og missti tökin á tilverunni. „Svo hefst bara atburðarás þar sem í raun og veru svona, jú jú maður hafði fullt um málið að segja en þetta bara, vinsældir eru svona lúppa og þú reynir bara að fylgja með straumnum“.

Rosalegum vinsældum fyrir líka drykkja og dóp og Einar Ágúst sökk djúpt. „Ég hef oft sagt það, það hefur enginn skemmtikraftur á Íslandi drullað meira upp á bak en ég eða bara komist upp um, ég veit það ekki“ . Aðspurður hvort hann hafi ná svo langt niður að hann hafi viljað segja skilið við lífið „Já, algjörlega“, svarar hann. Hann hafi þó verið of trúaður til að velja sjálfsvíg en trúin brast líka. „Vanlíðanin er orðin alveg virkileg þannig að ég reyndi sjálfsvíg oftar en einu sinni. En svo ákvað ég bara að segja mig úr lögum við samfélagið, gera bara það sem mér sýnist og drekka og dópa þar til ég dey“, segir Einar Ágúst og hann hafi náð langt í því. „Svo er ég lamin ofboðslega illa og bara laminn í hakkabuff, tvisvar“, rifjar hann upp frá árinu 2006 og þær árasir hafi bjargað lífi sínu því þar með ákvað hann að snúa við blaðinu.

„Það lækkaði í mér rostann“.

Áður hafði tilvera Einars færst niður í undirheimana. „Þarna á þessum tíma er maður að umgangast þannig fólk, maður er í neyslu og það er það sem hentar manni og fólk er að brasa ýmislegt í kringum mann og svo bara allt í einu einn daginn siturðu bara inni á lögreglustöð með tárin í augunum og þú veist í raun og veru ekkert um hvernig þetta er að fara að enda en þá segir einn vinur minn við mig: „Já, er þetta í fyrsta skiptið sem þú ert handtekinn?“ Og ég segi já. Þá segir hann: „Mundu bara eitt Einar“ – og ég hélt hann ætlað að koma bara með úrlausn fyrir mig – Hann sagði bara: „Það venst“.

Honum fannst þetta furðulegt viðhorf en svo varð það raunin: „Svo kom það bara á daginn að þarna 2004 til 2006 tekur við alveg rosalegt ógæfutímabil og ég varð oft að sitja inni í sólarhring af því að ég var bara að þvælast í þannig félagsskap. Ég er að detta inn í einn og einn sólahring svona og það vandist“.

Hann segir að stundum þegar klefahurðin lokaðist á eftir honum hafi honum fundist gott leggjast út af og hugsað: „Ahhh, smá frí, aðeins smá frí frá raunveruleikanum og bara lífinu, núna get ég aðeins slakað á“, rifjar hann upp.

Einar Ágúst segist ekki hafa lent í neinu heldur skapað sitt líf sjálfur sem hann lýsir á þennan veg: „Það er í raun og veru ósanngjarnt hvernig lífið hleypur alltaf í fangið á mér en svo sannarlega fæ ég það í hausinn ef ég er ekki samkvæmur sjálfum mér eða bara samkvæmur því sem eðlilegt er“.

Þáttinn í heild má sjá hér

Aldamótatónleikar Skítamórals eru í Eldborg um helgina.