Andrea Sigurðardóttir, verkefnisstjóri á samskiptasviði Marel, birti í gær innheimtubréf sem frændi hennar fékk vegna 100 kr. skuldar frá árinu 2006.
„Er ekki allt í standi hjá „samfélagsbankanum?“ Það eru 17 ár síðan,“ skrifar Andrea.
Ólafur Fannar nokkur greinir frá því að hann hafi fengið sambærilegt bréf. En Landsbankinn sjálfur svara henni einnig og segir um mistök hafi verið að ræða.
„Sæl Andrea. Vegna mistaka fór svona póstur til lítils hóps viðskiptavina nú í morgun. Við erum að senda leiðréttingu og afsökunarbeiðni,“ skrifar Landsbankinn.
Sæl Andrea. Vegna mistaka fór svona póstur til lítils hóps viðskiptavina nú í morgun. Við erum að senda leiðréttingu og afsökunarbeiðni.
— Landsbankinn (@landsbankinn) February 27, 2023