Fékk hríðir á sóttkvíarhótelinu: „Þurftum ekki að sjóða vatn og taka til handklæði eins og gert er í bíómyndunum“

Um það bil 500 manns dvelja nú á sóttkvíarhóteli eftir að hafa komið til landsins erlendis frá en allir þeir sem koma til landsins frá hááhættusvæðum þurfa að dvelja á sóttkvíarhóteli meðan beðið er niðurstöðu tvöfaldrar skimunar.

Sóttkvíarhótelin hafa nú verið í notkun í nokkurn tíma en ýmislegt hefur komið upp hjá farþegum sem þar dvelja. Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttahúsa Rauða krossins, greinir frá því í samtali við Fréttablaðið að það sé algengt að einn og einn veikist vegna COVID-19 en önnur veikindi eru sjaldgæfari.

Hann greinir enn fremur frá því að í gær hafi kona fengið hríðir meðan hún dvaldi á sóttkvíarhótelinu og var í kjölfarið flutt á sjúkrahús þar sem hún eignaðist barnið.

„Þannig við sem betur fer þurftum ekki að sjóða vatn og taka til handklæði eins og gert er í bíómyndunum. En það alla vega fæddist barn um helgina þannig að það hefur kviknað líf í farsóttahúsum,“ segir Gylfi í samtali við RÚV.

Fjölskylda konunnar fer í seinni skimun í dag og mun því vonandi geta heimsótt nýja fjölskyldumeðliminn sem fyrst.