Fékk bréf frá Láns­traust sem átti að fara á þing­mann: „Völdum minni­háttar truflunum í lífi hvors annars“

Al­manna­tengillinn Andrés Jóns­son og þing­maðurinn Andrés Ingi Jóns­son lenda greini­lega iðu­lega í því að þeim er ruglað saman.

Andrés Jóns­son al­manna­tengill birti í dag bréf frá Láns­traust sem átti að berast til þing­mannsins en þar er verið að biðja um stjórnmálaleg tengsl en hann er nokkuð viss um að þarna séu mistök á ferð.

Þingmaðurinn svarar léttum tón fyrir neðan og segir að þessi mistökin skemmtileg: „Skemmtilegast að við virðumst alltaf ná að valda truflunum í lífi annarra í leiðinni!“ skrifar Andrés Ingi.