Óvenjulegur dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni vegna deilna sem spruttu upp vegna fasteignakaupa í Mosfellsbæ árið 2017.
Kröfur í málinu gengu á víxl: Seljandi eignarinnar, 340 fermetra einbýlishúss, krafðist þess að kaupandi myndi greiða honum 9,8 milljóna króna eftirstöðvar kaupverðs en kaupandi krafðist þess að seljandi greiddi honum 14,9 milljónir vegna galla sem voru á fasteigninni, raka- og mygluskemmda meðal annars.
Þegar kaupendur fengu húsið í hendurnar sáu þeir ýmsa galla sem þeir höfðu ekki séð við skoðun. Þá vakti slæmur viðskilnaður strax vakið athygli, óhreinindi og lausir munir.
„Þá hafi hluti úr botni eldhúsinnréttingar gefið sig við skoðun og vakið upp grunsemdir um að eitthvað meira væri að. Hafi verið farið með barkamyndavél á bak við innréttinguna og komið í ljós raki, mygla og músarhreiður,“ að því er segir í dómi. Þá hafi starrahreiður verið í þakrennum og starrarnir komist inn um op á þakköntum á húsinu.
Í málinu var lagt fram bréf frá arkitekt sem kaupendur hússins fengu til að veita ráðgjöf um að koma húsinu í það horf sem höfundur hússins hafði séð fyrir sér við hönnun þess.
„Segir að við vettvangsskoðun í síðara skiptið hafi komið í ljós verulegir gallar á upprunalegri eldhúsinnréttingu og er þeim göllum lýst sem bólgnum og lausum botnplötum skápa, raka í hliðarstykkjum og sýnilegri sveppamyndun í nokkrum skápum […] Þá hafi verið ljóst af öllum ummerkjum að þetta ástand hlyti að hafa varað í nokkurn tíma og mikil ólykt hafi verið vegna músa sem höfðu búið um sig í sökklum innréttingarinnar.“
Í niðurstöðu dómsins kemur fram að eignin sé um 30 ára gömul og í kaupsamningi hafi komið fram að tími væri kominn á viðhald við húsið. Þá hafi söluverð hússins, 77 milljónir króna, samræmst því að um hafi verið að ræða fasteign sem þyrfti endurbóta við. Þá er vísað til þess að í kaupsamningi hefði kaupandi sætt sig við ástand hússins, eins og það var eftir „ítarlega skoðun“. Var því flestum kröfum kaupanda vísað frá.
Dómari gerði kaupandanum að greiða eftirstöðvar kaupverðs, að 659 þúsund krónum undanskildum. Var húsið óíbúðarhæft í einhvern tíma eftir þetta vegna starfa meindýraeyðis og þá þurftu kaupendur að leigja geymslur fyrir búslóð. Er afslátturinn meðal annars kominn til vegna þess.