„Ég held að ég hafi bara verið heppinn“, segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu – félags fanga á Íslandi um þá sálfræðiþjónustu sem hann naut á alls 16 árum sem hann sat í fangelsi en hann hitti á öllum þeim árum sálfræðing einungis sjö sinnum.
Guðmundur Ingi er í viðtali í þættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Hann sækist eftir einu af efstu sætum á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Hann hefur hefur reynslu sem fáir hafa haft sem vilja inn á Alþingi. Hann hefur setið í fangelsi í alls 16 ár fyrir ofbeldislausa glæpi. Hann var laus við eftirlit, ökklabandið í ágúst liðnum.
Hann vill benda á brotalamir í refsikerfinu hér á landi. „Algjörlega, og ef við tökum bara fangelsiskerfið þá vil ég algerlega umturna því“.
„Ég held að fólk átti sig ekki almennilega á því hvað það eru margir sem eru frelsissviptir og sem tengjast þeim hópi og ekkert endilega bara í fangelsum, það eru aðstandendur, börn og vinir, þetta er rosalega stór hópur og ég held að þessi hópur vilji fara að sjá breytingar. Ég held að allir séu sammála því að það þarf að taka upp endurhæfingarstefnu, eða það sem við köllum betrun svona almennt og það mun skila samfélaginu til baka ótrúlega miklum ávinningi“, segir Guðmundur Ingi.
Grundvallar mannréttindi
Aðspurður um reglur um kjörgengi varðandi hreint sakavottorð, sem Guðmundur Ingi er ekki með, segir hann að það þurfi ekki til heldur flekklaust mannorð samkvæmt lögum sem hann hefur kynnt sér vel: „Eitthvað sem við köllum uppreist æra sem aldeilis hefur verið talað um á síðustu árum, að uppreist æra var felld niður í lögum 2018 og það var bætt inn í kosningalögin. Fjórða og fimmta grein kosningalaganna taka einmitt til míns kjörgengis og þar er óflekkað mannorð skilgreint og þegar maður hefur lokið afplánun að fullu þá er maður með óflekkað mannorð og ég hef lokið minni afplánun að fullu samkvæmt lögum um fullnustu refsinga“, útskýrir Guðmundur og þar með sé hann kjörgengur.
„Enda eru þetta grundvallarréttindi sem menn hafa“.
Þú ert búinn að borga þína skuld við samfélagið, heldurðu að samfélagið líti svo á? Má fara af Litla Hrauni yfir á Alþingi?
„Ég er ekki að hugsa mikið um það, ég er bara búinn að vinna að ákveðnum málum undanfarin ár, ég hef öðlast ofboðslega mikla þekkingu og reynslu af þessum málaflokki, ég er bara að vinna að því í dag og mun vinna að því áfram“.
„Eitt af því sem við erum að vinna með eru dómþolar og frumskógur reglugerða í stjórnsýslunni er ótrúlegur og erfitt að komast í gegnum hann, sérstaklega í þessum málaflokki og ég hef verið í því að fræða almenning og stjórnvöld sem eiga mjög erfitt með að komast inn í þessi mál. Við höfum séð það bara með gölluðum lögum og illa unnum og illa orðuðum, samt er þetta unnið af lögfræðingum og fleirum. Ég vil laga þetta“.
Þú ert að segja að það vanti reynsluna í byggingu reglugerða og laga?
„Já, það þarf að taka grasrótarsamtök og frjáls félagasamtök aðeins meira inn í þetta“.