Fékk á baukinn vegna færslu um Vilhjálm: „Sennilega kúltúrsnauðasti alþingismaður Sjálfstæðisflokksins“

Vilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fékk á sig nokkra gagnrýni í gærkvöldi þegar hann birti mynd af nafna sínum og fyrrum kollega, Vilhjálmi Árnasyni, á Facebook.

Vilhjálmur Árnason er eins og kunnugt er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður þingflokksins. Þykir Vilhjálmur vel metinn og eru margir þeirrar skoðunar að hans bíði björt framtíð innan Sjálfstæðisflokksins. Vilhjálmur Bjarnason virðist þó ekki vera neinn aðdáandi eins og glögglega kom í ljós í gærkvöldi.

„Þetta er Vilhjálmur Árnason, alþingismaður. Hann er sennilega kúltúrsnauðasti alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur aðeins einu sinni farið á tónleika hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, þá í boði hljómsveitarinnar í framhaldi af mjög vondri ræðu. Sennilega þekkir hann ekki sinfóníu frá skilvindu!“

Líklegt má telja að kveikjan að þessari færslu Vilhjálms Bjarnasonar sé nýtt frumvarp sem þeir Ásmundur Friðriksson, Arnar Þór Jónsson og Vilhjálmur Árnason hafa lagt fram um að leggja niður heiðurslaun listamanna.

Vilhjálmur Bjarnason var gagnrýndur í athugasemdum við færsluna.

„Vilhjálmur Bjarnason þessar sneiðar þínar til þingmanna Sjálfstæðisflokksins eru komnar ansi langt. Hver er eiginlega tilgangur þinn með þessum skrifum,“ sagði til að mynda Bergur Þorri Benjamínsson.

Erna Ýr Öldudóttir brást einnig við og var ósátt við skrif Vilhjálms.

„Sinfóníutónleikar eru fyrir fólk með nógan tíma. Nafni þinn er ungur fjölskyldumaður og þingmaður stórs kjördæmis. Finnst þetta dálítið ómakleg athugasemd hjá þér.“