„Fáviti“ skyggði á útsýni yfir glæsilegu hraunána í Geldingadölum

Einstaklingi sem hafði labbað upp að elgosinu til að bera það berum augum fannst það einstaklega sniðug hugmynd að skemma fyrir þeim þúsundum sem fylgjast með gosinu heima í stofu.

Slíkum einstaklingum er yfirleitt lýst sem „fávitum“ eftir að Fávitavarpið á Facebook opnaði. En þar segir „Hér söfnum við inn skjáskotum af fávitunum sem halda að slow TV sé þáttur um slow people eins og það sjálft. Endilega skellið inn skjáskotum af fólki sem er að skemma útsendinguna frá eldgosinu með sínum beljusmettum.“

Það var þó ekki andlitið á kappanum sem var að eyðileggja útsendinguna að þessu sinni heldur höndin og þegar veifinu lauk birtist hann með símann sinn. Ný og glæsileg hrauná hafði byrjað að renna skömmu áður og hefðu áhorfendur eflaust frekar viljað sjá hana.

Eldgosið hefur nú staðið yfir í fimm mánuði og hefur vefmyndavél RÚV fangað stuðið og stemminguna fyrir þá sem ekki geta komist sjálfir. Samkvæmt frétt RÚV um myndavélina hefur verið horft á gosið í fjórar milljónir klukkutíma. Mest er áhorfið í Bandaríkjunum, Bretar eru einnig hrifnir sem og Þjóðverjar.