Fáum fimm þúsund skammta frá Moderna í janúar

Ís­land fær fimm þúsund bólu­efna­skammta frá lyfjarisanum Moderna í janúar og febrúar ef á­ætlanir lyfja­fram­leiðandans ganga eftir. Eftir það á afhendingin að verða hraðari. Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Gert er ráð fyrir að bólu­efnið fái markaðs­leyfi í Evrópu á morgun eftir mats­fund Lyfja­stofnunar Evrópu.

Alls eigum við að fá 128 þúsund bólu­efna­skammta frá Moderna, duga þeir fyrir 64 þúsund ein­stak­linga.

Á fyrstu þremur mánuðum ársins á Ís­land að fá að lág­marki 45 þúsund bólu­efna­skammta af­henta frá Pfizer til við­bótar við þá tíu þúsund sem voru af­hentir í lok síðasta mánaðar.