„Það voru sorglegar fréttir sem bárust úr Skagafirðinum í dag. Bændurnir á Stóru Ökrum máttu þar sjá á eftir öllu sínu fé í riðuniðurskurð. Hræðilegur sorgardagur og leyfi ég mér að halda að hver einasti sauðfjárbóndi landsins hafi fengið herping í hjartað við tíðindi dagsins,“ skrifar sauðfjárbóndi nokkur á Facebook í dag. Færsla hennar, sem lýsir eflaust vel þungu hugarfari flestra sauðfjárbænda á landinu, hefur vakið þó nokkra athygli.
„Að rækta bústofn er verkefni, áhugamál og lífsstíll sem sinnt er með natni og áhuga. Ófáir klukkutímar sem fara í að pæla í tölum og velja líflömb. Metnaður í allra umönnun, heyskap og gegningum, allt til að framleiða gæðakjöt,“ skrifar bóndinn.
„„En það er ekki allt. Allir bændur eiga sögur, sögur úr göngum, réttum, eftirleitum. Sauðburðarsögur. Sögur af kindum. Í fjárhópnum eru sterkir karakterar, frekjur og harðhausar, en líka blíðar barnagælur, bestu vinir bænda og barnanna á bænum. Allt þetta máttu bændurnir á Stóru Ökrum kveðja í dag. Það hefur verið sárt. Uppáhaldskindur voru kvaddar. Tár hafa fallið.“
Þá segir hún að versti partur dagsins hafi þó verið fréttaflutningur stöðvar 2 af niðurskurðinum: „Og þó Edda Andrésdóttir hafi varað við myndunum sem fylgdu fréttinni þá gat fátt undirbúið sauðfjárbóndann undir það að sjá í fæturna á Móru heimalning innan um plastpoka og annað rusl, hvar risastór krabbi var á leiðinni að moka henni eins og hverju öðru drasli inn í bræðsluofn.“
Loks segir sauðfjárbóndinn: „Móra stóð með hinum við garðann í gær, hún þáði klapp og var kvödd með tárum í morgun. Og ég bara spyr fréttastjóra Stöðvar2, hverju eiginlega bætti þessi myndataka við fréttina? Var þetta í alvörunni nauðsynlegt?“