Fast sótt að Bjarna: „Bjarni mun erfa föður sinn og þess vegna er hann sjálfur beinlínis að hagnast á þessu“

Fast er sótt að Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra vegna útboðs á hlutum Íslandsbanka á dögunum. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var faðir Bjarna, Benedikt Sveinsson, á meðal kaupenda í útboðinu.

Bjarni sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að hann hafi ekki vitað að faðir hans væri meðal kaupenda. Það hefði raunar komið honum í opna skjöldu. „Það gerði það. Ég hafði ekki hugmynd um það,“ sagði Bjarni.

Ummæli hans hafa vakið athygli á samfélagsmiðlum í morgun.

„Er ekki augljóst að þetta gengur ekki? Þarf virkilega eitthvað að velta því fyrir sér? Faðir fjármálaráðherra fær úthlutað takmörkuðum gæðum - fær að kaupa ríkiseign með afslætti. Bjarni mun erfa föður sinn og þess vegna er hann sjálfur beinlínis að hagnast á þessu. Getur spillingin verið augljósari,“ spyr Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrverandi prófessor í íslensku, á Facebook-síðu sinni. Deilir hann þar frétt Vísis af málinu.

Það sem gerir Illugi Jökulsson, sagnfræðingur og fyrrverandi ritstjóri. „Æjá, alveg rétt, við höfum einmitt haft svo mikla ástæðu til að trúa Bjarna Benediktssyni gegnum tíðina.“

Eiríkur veltir svo fyrir sér í annarri færslu í morgun hvort salan til föður Bjarna sé ekki bara smjörklípa til að slá ryki í augun á okkur.

„Svo kemur Katrín eða Bjarni eftir nokkra daga og segir að til að lægja öldur og endurvekja traust á ferlinu hafi pabbi gamli fallist á að draga kaupin til baka. Þá verðum við öll rosa ánægð, hrósum ríkisstjórninni og gleymum alveg öllum hinum fjárglæframönnunum sem fengu að kaupa (og því sem Sigurður Ingi sagði).“