Fast sótt að Bjarna á fundinum í morgun: „Ég ætla ekki að láta grípa fram í fyrir mér heldur!“

Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, var nokkuð heitt í hamsi á opnum fundi fjárlaganefndar í morgun. Þar svaraði hann spurningum varðandi Íslandsbankaútboðið og var nokkuð fast sótt að honum.

Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Bjarna spjörunum úr og birtir fréttavefur DV hluta úr samtalinu sem fór fram á milli þeirra. Kristrún furðaði sig meðal annars á því að hvernig Bjarni gat axlað sína ábyrgð á sölunni með ákvörðun sem tók hann aðeins tvær klukkustundir að taka.

Bjarni svaraði í nokkuð löngu máli og benti Kristrún þá á hún gerði ráð fyrir að Bjarni svaraði spurningunum beint þar sem um knappan tíma væri að ræða. Urðu nokkur orðaskipti á milli Bjarna og Kristrúnar eins og fram kemur í umfjöllun DV:

Bjarni: „Já en það er spurt að því, og það er látið liggja að því, að í ráðuneytinu hafi menn ekki verið að vanda sig vegna þess að þeir tóku ákvörðun í tiltölulega skömmum tímaramma…“ 

Kristrún: „Já en svaraðu spurningunni…..“ 

Bjarni: „En allt þetta var fyrirséð….“ 

Kristrún: „Leitaðir þú ráðgjafar í ráðuneytinu..“ 

Í frétt DV kemur fram að þá hafi Bjarna verið orðið heitt í hamsi og sagt að hann yrði að fá að bregðast við. „Ég er ekki kominn hingað til að rífast við einstaka nefndarmenn….“

Kristrún greip þá fram í og sagði að hann væri kominn til að svara spurningum.

Bjarni: „Ég ætla ekki að láta grípa fram í fyrir mér heldur! Ég óska eftir því að fundinum verði stýrt..“

Kristrún: „Formaður, ég óska eftir því að ráðherra svari spurningum.“

Bjarkey er þá sögð hafa reynt að koma reglu aftur á fundinn og sagt mikilvægt að Bjarni hefði ekki of langan aðdraganda að sínum svörum.

Nánar um málið á vef DV.